Sundlaugarmenning á Íslandi skráð á lista UNESCO um óáþreifanlegan menningararf

Sundlaugamenningin er órjúfanlegur hluti af daglegu lífi og samfélagsgerð Íslendinga. Árið 2025 var hún færð á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf sem lifandi hefð og sérstætt félagslegt fyrirbæri.
UNESCO Íslenska landsnefndin

Um UNESCO á Íslandi

Íslenska UNESCO-nefndin er tengiliður Íslands við Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna og starfar sem ráðgefandi aðili fyrir stjórnvöld í málefnum er varða menntun, vísindi, menningu og tjáningarfrelsi. 
 
Nefndin gegnir lykilhlutverki í að kynna og efla gildi stofnunarinnar hér á landi, styðja við heimsminjaskráningu og líffræðilega fjölbreytni, sem og að miðla íslensku hugviti, arfleifð og sérstöðu á alþjóðlegum vettvangi.

Heimsminjaskrá

Á heimsminjaskrá UNESCO eru þrír íslenskir staðir sem búa yfir einstöku alheimsgildi:

Þingvellir

Skráðir sem menningarminjar fyrir sögulegt vægi Alþingis frá 930 til 1798, staðsettir á sýnilegum flekaskilum.

Surtsey

Skráð sem náttúruminjar; ósnortin náttúrurannsóknarstofa sem varð til í eldgosi 1963–1967 og sýnir hvernig líf nemur nýtt land.

Vatnajökulsþjóðgarður

Skráður sem náttúruminjar fyrir einstakt samspil eldvirkni, jökulhettu og síbreytilegs landslags elds og íss.

Jarðvangar, vistvangur og skapandi borgir

Auk heimsminjaskrárinnar tengist Ísland starfi UNESCO með virkri þátttöku í alþjóðlegum netverkum sem styðja við sjálfbæra þróun, verndun náttúru og blómlegt menningarlíf.

Katla jarðvangur

Nær yfir Suðurland frá Hvolsvelli að Kirkjubæjarklaustri. Einkennist af mikilli eldvirkni undir jökli (Kötlu, Eyjafjallajökli), sandasléttum og jökulhlaupum, með áherslu á náttúruvá, jarðfræðifræðslu og sjálfbæra ferðaþjónustu.

Reykjanes jarðvangur

Nær yfir allan Reykjanesskagann þar sem Mið-Atlantshafshryggurinn kemur á land. Einkennist af sýnilegum flekaskilum, sprungureinum, háhitasvæðum og ungum hraunbreiðum, með áherslu á jarðvarmanýtingu, nýsköpun og jarðferðamennsku.

Snæfellsnes vistvangur

Svæði á vegum áætlunarinnar Maður og lífhvolf sem nær yfir Snæfellsnes. Einkennist af fjölbreyttu lífríki, jökli og strönd, með áherslu á sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda, hringrásarhagkerfi og samspil manns og umhverfis.

Reykjavík bókmenntaborg

Fyrsta borgin utan enska málsvæðisins í neti skapandi borga UNESCO. Einkennist af fornri handritamenningu og lifandi ritlistarsenu, með áherslu á lestrarmenningu, stuðning við skapandi greinar og alþjóðlegt kynningarstarf.

Minni heimsins

Sýn UNESCO í þessu verkefni er einföld en um leið mögnuð: að menningararfur heimsins sé almenningseign sem beri að varðveita og gera aðgengilegan öllum. 

Manntalið 1703

Manntalið 1703 er líklega elsta manntal í heimi, sem enn er varðveitt, þar sem getið er allra þegna heillar þjóðar með nafni, aldri og stöðu.

Handritasafn Árna Magnússonar

Handritasafn Árna Magnússonar geymir ómetanleg handrit um sögu og menningu Norðurlanda, og raunar stórs hluta Evrópu, allt frá miðöldum til nýaldar.

Fréttir

UNESCO kynnir nýjan leiðarvísi fyrir fjölskyldur á  stafrænni öld

Sundlaugasumar 2026: Fjöldafreyðibað á fimmtudag

Unesco Íslenska landsnefndin logo

UNESCO dagurinn 7. maí 2026

Scroll to Top